YOKO BONO
Stuðmenn í óstuði
En áfram með smjörvan, Bubbi Kóngur....hvaða bull er þetta með kóngsnafnið...kóngur yfir hverju??? Mest af plötum eða hvað, kannski konungur rímaranna eða konungur tækifærissinnana...Það er bara einn kóngur til í tónlistinni og hann hét ELVIS, nú King of Pop er frátekið....kallinn nýkominn úr veiði með nokkrum milljarðarmæringum, skil ekki alveg að hann sé svo að koma eins og einhver alþýðumaður og gjamma um eitthvað sem eiginlega hvorki var haus eða sporður á....Bubbi, endilega syngja bara, ekki tala.
En svo er það stóra jókið á tónleikunum, Stuðmenn, hljómsveit allra landsmanna....Bubbi KÓNGUR búinn að hita liðið upp þvílíkt að það stefndi í risa klæmax!!!! en þá ákváðu stuðararnir að nú skyldu þeir heldur betur STUÐA mannskapinn og það tókst bara vel, stemmningin var svona eins og maður gæti ýmyndað sér á fjölum, búið að laga frábæra súpu úr síðasta súpupakkanum, hún er funheit, lyktin berst að vitum allra, hún bragðast eins og besta súpa í heimi og þá rétt í þann mund sem á að fara að borða súpuna, ákveður einhver að skíta í pottinn!!! Ég átti von á þvílíku fjöri og skemmtileheitum, Bo ætlaði að mæta og hvað gerist, menn viðrast hafa eytt svo miklum tíma í að gera búningana að þeir gleymdu að þeir áttu að skemmta fólkinu. Vondur brandari sem var vondur frá byrjun til enda, vorkenndi Bo se skildi hvorki upp né niður. Stuðmenn skella sér í langa pásu með Palla orðlausa!!! og eitt enn hvar er Þórður gítarleikari Stuðmanna?? Hvar var Birgitta??? Hvar var Valgeir???
Fór aðeins á menningarrölt í gær....voða gaman en er þatta ekki eitthvað rangnefni, það er eiginlega allt búið áður en nóttin kemur, ég allavega lít svo á að nóttin byrji á miðnætti og þá er allt búið!!! En kannski er þetta bara gamla stærðfræðiblindan í mér, hvað veit ég.
ég er blogger
alltaf að kvarta og kveina og finna öllu allt til foráttu....að ég
skuli nú ekki drullast til að létta á mér hér á Rostungnum, jafnvel
þó engin lesi það nema ég, bara tuða og tafsa í eiginn garði....það
held ég, annars lítið að frétta, er í sumarfríi, yndislegt veður. Á
miðvikudaginn verður sú bíómynd sem ég hef beðið hvað spenntastur
eftir frumsýnd....teiknimyndin Ratatoullie...Pixar mynd, keypti mér
bókina sem fer í gegnum list myndarinnar, algjör snilld og
söguþráðurinn er rotta sem er snilldarkokkur....getur ekki klikkað,
ætla ´a fyrstu sýningu dagsins....svona er ég nú einfaldur maður.
Ekkert að frétta af Bowie, ég ætlaði á tónleika með honum í NYC í
maaí s.l. en hann hætti við vegna annara verkefna....ok, ég bíð þá
bara rólegur. Er búinn að taka ákvörðun um að fara á fótboltaleik í
Londn í vetur, sjá West Ham Liverpool, ég var áhangandi WH hér í
den þegar Bobby Moore var þar allt í öllu og englendingar nýlega
nbúnir að vinna Heimstrakettnina í Krastpyrnu....en nú er það The
Eggman sem dregur að og auk þess heldur stjúpsonur minn upp á
Livrarpool. og svo elska ég London. Er á miklu Rollig Stones flippi
þessa daganna, það er engu logið um það að þetta er einfaldlega
besta hljómsveit allra tíma, ekki út frá tónlistarlegu sjónarhorni
kannski en öllu hinu. I love em!!! Lífið er dásamlegt.
Bowie 60
gleðilegs árs og velsæmdar, friðar og hvaðeina sem mönnum dettur í
hug. Nýja árið byrjaði heldur óskemmtilega, ég lagðist inn á
lansann með 40.8 stiga hita þann 3ja jan, fékk alveg ferlegar
kvalir í kviðarholið og brjóstkassan og hélt ég væri að drepast.
Var sendur í óm skoðun, segulómun, ómskoðun aftur, stunginn með
nálum, rassamældur, pissaði í flöskur (það var verið að mæla magn
þvags per fermeter eða eitthvað) svaf og svaf, dælt í mig
sýklalyfjum þar sem myndast hafði mikil sýking í gallið, gallveginn
og niður í milta sem var að sýna tölur sem þeim leist ekki á....sem
sagt heljarinannar læknasull allt saman, fékk að fara heim á
sunnudag og aftur upp á lansa ´æa mánudag og átti ég að fara í
uppskurð þar sem fjarlægja átti gallblöðruna...en þá fannst bara
ekki neitt steinavesen eða neitt svo ég var sendur heim á
þriðjudagseftrimiðdag, er hundur slapur en mátulega hress, ætla í
vinnu á morgun eitthvað...á í raun bara að bíða eftir næsta kasti
held ég. En að vanda byrjar samt árið alltaf vel, David Bowie
æskuvinur minn á alltaf afmæli 8. janúar, nú var stórafmæli,
kallinn orðinn 60 ára og fengum við fjölda hamingjuóska í formi
netskeyta og sms'a, takk fyrir það. Fyrir tíu árum hélt kallinn
svaka tónleika í Madison Square Garden, þar sem fjöldi
tónlistarmanna steig á stokk með honum (Lou Reed, Foo Fighters,
Frank Black, Sonic Youth, Robert Smith ú the Cure og Billy Corgan),
á þessa tónleika á dvd, algjör snilld. Annars dáldið magnað að
búinn að vera að fylgja svona einum aðila í 35 ár eða síðan ég las
um hann smá grein í Vikunni rétt eftir útkomu Ziggy Stardust í júní
1972, held að ég eigi greinina einhversstaðar. Er að hugsa um að
setjast við að gera nokkurra blaðsíðna bók um kallinn á pdf formati
og senda vinum og vandamönnum, svona mína sýn á kallinn. Taldi
lauslega hvað ég ætti af diskum með honum, á náttúrulega allan
orginal katalógin (fleiri en eina af flestum) en með
tónleikaupptökum og allskyns bootleggum af hinu og þessu þá telst
mér til að ég eigi eitthvað rétt um 350 diska (þ.e. hylkin, ansi
margir tvöfaldir), ég á 24 DVD diska megnið af þeim boota efni úr
sjónvarpi og soleiðis, 22 bækur á ég um kallinn og svo eitt og
annað. Þannig að það er smá sem situr eftir þó aldrei hafi ég orðið
ríkur af þessum pælingum, tónlist meistarans hefur gefið mér
gríðarlega mikið, ég hef séð hann á sviði 5 sinnum, 1983 í
Stokkhólmi, 1987 (11. júní), í Los Angeles (tvisvar 14 og 15 Okt),
Dublin 1995 (24. nóv) og svo í Laugardalshöll 1996 (20. júní). Er
að vonast til að komast á tónleika með honum sem kannski eru
fyrirhugaðir í N.Y.C. í maí n.k. Á afmælisdaginn hans var ég að
velta fyrir mér hvað væru mínar uppáhaldsplötur með honum og renndi
á iPodnum yfir kataloginn og held að svona líti röðin út í dag,
verður eitthvað breytt eftir ár á ég von á. 1. Low. 2. Station to
Station. 3. Heroes. 4. Ziggy Stardust. 5. Heathen. 6. Scary
Monsters. 7. 1.Outside. 8. Let's Dance. 9. Buddha of Suburbia. 10.
Young Americans. Uppáhalds tónleikaupptökurnar í aldursröð: 1.
Nassau 1976. 2. Baton Rough 1978. 3.The Duke and the Hawk, upptaka
frá æfingu fyrir Serious Moonlight túrinn 1983, Stevie Ray Vaughn e
þarna á gítarnum, var rekinn nokkrum dögum síðar. 4. Tokyo 1990. 5
St. Lois 1995. 6. Reykjavík (ég get ekki annað) 7.Toronto 1997 8.
Dublin 1999. 9. Back at Hammersmith 2002. 10. N.Y.C Madison Square
Garden 2003. 11. Jones Beach 2004......? Ég er ekki að sjá að
aðdáun mín af David Bowie hverfi neitt alveg á næstunni, læt mig
hafa það. Atli Freyr Sveinsson frá Sauðárkróki sagði ansi
skemmtilega sögu af mér þegar ég hitti Bowie hér um árið, hún var á
þá leið að þegar ég hitti hann hafi ég orðið voða skrýtinn g tafsað
þessi reiðinar bísn en á endanum stunið upp, „How do you like
Iceland, Mr Bowie„???? er þetta satt???....sagan er góð.
Í dag er hátíð á morgun enn meiri hátíð!
langreiðinn síðan sumarið 1989. Ég átti heiðurinn af því að saga
niður síðasta hvalinn og var það ljúfsárt, en á morgun fer ég upp í
Hvalfjörð að skera hval....og get varla setið rólegur af spenningi.
Hvað sem öðrum vinnum líður að þá er lít ég fyrst og fremst á mig
sem hvalmann og tilkynnti formanni mínum það að ég liti svo á að ég
væri æviráðinn í Hvalinn, allt sem ég hef gert síðan síðasti
hvaliurinn kom að landi hef ég litið á að væru biðstofur og
uppfyllingarvinna þangað til að Hvalurinn byrjaði aftur...og á
morgun fer ég éi hvalinn en hætti samt ekki hjá gci Grey Íslandi,
þessi vertíð er ekki nógu laung tlil þess og svo er þetta frábær
vinna, þannig að við sjáum til í vor hvort maður hætti og dembi sér
í hvalinn.....en semsagt til hamingju allir Hvalmenn og konur nær
og fjær. Til ykkar hinna sem eruð á móti hvalveiðum vil ég segja
þetta: ég virði ykkar skoðanir og vona að þið virðið mínar. Og við
Vinstri græna og Sammfokkinguna vil ég segja: Er bara hægt að vera
á móti öllu?
is there anybody out there......
Mér liggur aldrei þessu vant eiginlega ekkert á hjarta, nema að ég
er kannski að fara að skera hval, bara á allra næstu dögum og
kannski ekki, vona það samt, laungu kominn tími á vinsusteikt
hvalkjöt með smá soya.....ég sá bók um daginn sem er full af
leyndarmálum sem fólk hafði sent manni sem heldur úti heimasíðu, ég
sendi honum leyndarmál, það er í bókinni, ég segi ekki
meir....aldrei. Áttaði mig á því um daginn að ég hafði ekki vrið í
vondu skapi ansi lengi (hva...nokkra tíma shugsa nú einhverjir) það
var góð tilfinning, ég er síðan búinn að fara í vont skap nokkrum
sinnum, svo ég er ekkert að lagast. Er kominn á námskeið í
andlitsteikningu, mjög gaman, verst að það er á laugardagsmorgnum
kl. 10.00, ég kann ekkert að teikna, en er samt að rembast, er
svona skissari, skoðiði þetta bara og þá sjáiði hvað ég meina, verð
seint talinn
listamaður....http://www.flickr.com/photos/62166066@N00/ Er búinn
að vera á algjöru Depeche Mode trippi undanfarna mánuði, hlusta
eiginlega ekki á neitt annað, keypti mér nýjan hljómleikadisk með
þeim, tekinn upp í Mílanó fyrr á þessu ári, algjör snilld, þessi
grúppa er algjörlega frábær og ég veit ekkert ef hverju.....jæja
farinn að sofa, ég ætla að brosa í alla nótt því á morgun veitir
mér ekki af því að veraq í góðu skapi.
Lífið er gott
og fjórum öðrum hjónum í ógleymanlega óvissuferð sem endaði í
Haukadal, alveg yndislegt uppátæki, fullt af frábærum uppákomum og
skemmtilegheitum. ég búinn að sofa eina nótt í gamla rúminu mínu á
Kreml í Hvalstöðinni, Kristján Loftsson bauðp okkur nokkrum gömlum
hestum uppeftir á kvæðakvöld, algjör snilld, fengum grillað
hvalkjet af hval veiddum 1989, frábært kjet að vanda. ég fór við
fjórða mann yfir helgi á Siglufjörð......meiriháttar. Ég eyddi
helgi með sonarsyni mínum í Vík í Mýrdal, aldrei hefur mér þótt
eins gaman í Vík. ég fékk mér nýjan bíl. Konan mín hefur verið mér
góð. Mamma mín varð 75 ára og hélt þessa fínu veislu fyrir nánustu.
Ég er búinn að fara nokkrum sinnum á Gráa köttinn og hitta
yndislega vini. Ég er kominn með nýja vinnu sem ég er ákaflega
ánægður með. Ég sá Iggy Pop í annað sinn á ævinni og núna í
Reykjavík, flottur kall James Ostenberg. Og eitthvað er skemmtilegt
framundan, 9-11. júní safnast saman gamlir nemendur frá Reykjaskóla
1974-75, erum búin að leigja skólann eins og hann leggur sig þessa
helgi. Í lok Júní er Borðeyrarhátíð sem Gulla stendur fyrir ásamt
fleirum, helgina áður förum við Jafnvel á Drangsneshátíð og svo
dellums við náttúrulega í Hólminn á danska daga og svo ætlum við
Smári að fjölmenna til eyja með hóp af fólki, taka yfir eitt hótel
eina helgi og hafa gaman. Þannig að þetta gæti bara orðið hið besta
ár, vona bara að ég hafi nógu mörg góð sköp til að skarta við þessi
tækifæri. Annars bara þokkalegur. Hef verið að hlusta á Bruce
Springsteen, í gegnum tíðina hef ég ekki verið mikill aðdáandi hans
en 3 síðustu skífur hafa verið hver annari betri, fyrst var það The
Rising, þar sem hann syngur um heiminn eftir 9/11, svo kom ein
besta plata allra tíma Devils and Dust þar sem aðgerðir USA og
dauði alls þessa unga fólks við að framfylgja þessum bjánagangi í
Bush og félögum, þ.e. að passa upp á að allir ríku vinir hans græði
á olíunni, hefur ekkert með frelsi eða öryggi bandaríkjanna að
gera. Og svo er það platan sem ég er með í eyrunum alla daga núna
er platan We Shall Overcome The Seeger Sessions, þar sem hann
flytur eldgömul lög, yndisleg, ég var svo heppinn að Bjössilú
felagi minn reddaði mér svo tónleikaupptökum frá tónleikum 25.
apríl. s.l. þar sem hann flytur öll þessi lög og gott betur, hann
er algjör snilli á tónleikum kallinn. mæli með honum, hann er holur
fyrir sálina.
Það er allt í lagi að byggja kirkjur....
nafni minn Killjan sem skrifaði þetta, var ´í jarðarför og þá datt
mér þessi frasi í hug. Í hvaða litla heila varð þetta kirkjuform
til?? maður sér ekkert fyrir styrktarbitum og fólki, þeir einu sem
sjá eitthvað eru þeir sem sitja við ganginn, líklega er sá sem er
borinn til grafar á besta stað í kirkjunni.....Í síðustu færslu
talaði ég um hvað það er gaman í vinnuunni en nú er búið að selja
mig...ekki einu sinni heldur tvisvar, er að hætta hjá BaseCamp um
mánaðarmótin...búið að vera gríðarlega skemmtilegur tími. Það kom
maður og bánkaði á dyrnar heima hjá mér áðan, bað mig um tómar
flöskur, hann var heldur óásjálegur, var að safna fyrir sjálfan
sig, ég rak hann út, eyddi góðmennskiu minni í annað fyrr í dag. Á
morgun förum við hjónin á Selfoss á árshátíð Ömmubaksturs, ætla að
taka létta æfingu í kvöld, annars þyrfti ég að skreppa til
Keflavíkur í kvöld og knúsa barnabarnið....maður er að verða svo
fokking soft með aldrinum. Það er allt í lagi að byggja banka, þeir
eru hvort eð holir að innan. Á mánudaginn kemur út í fyrsta sinn á
DVD hinn margrómaða tónleikamynd meistara míns og ædols David
Bowie, hér er um að ræða endurhljómblandaða og endurmyndunna
snilldarútgáfu af þessum frábæra túr kallsins frá 1983, á disknum
er einnig hinn mjög svo súrealíska heimildarmynd Riccochet sem
tekin var sama ár þar sem fylgst er með kallinum á ferð í Asíu,
massíf eign sem enginn ætti að láta fara fram hjá sér....svo er von
á 30 ára endurútgáfum af Young Americans og Station to Station.....
Gaman í vinnunni....
svo heppinn að hver dagur er bara skemmtilegur frá morgni til
kvölds og eru það nokkur ár síðan mér hefur fundist það, yndislegt
hvað manni líður miklu betur og óþreyttari í lok dags. Fórum a Grá
köttinn þessi vanalegi hópur -Hrund og Lóa....nei ekki alveg, Lóa
mætti bara á svæðið, flutt heim frá Mílanó þar sem hún hefur verið
í Hardcore námi alltaf flott og brosandi, er bara að klára
ritgerðina og svo er hún bara orðin jafnvíg á hönnun og markaðsmál,
það er meira en segja má m marga!!, ákváðum að vera með litlu jólin
og 5 ára afmæli Grá hópsins á þorláksmessu, það verður stuð, nú er
það bara Gunni sem eftir er á Íslensku, öll erum við hin komin
annað, vera okkar og samstarf á ÍA er það sem bindur okkur saman, á
þeim tíma sem það var alltaf gaman í vinnunni, ég gat ekki beðið
eftir að komast í vinnuna á morgnanna.....yndislegur tími.
jæja
fáránlegt......ég er glaður, kominn í vinnu hjá fyrirtæki sem
heitir BAse Camp...þetta er dótturfyrirtæki Dags Group, þeir
framleiða sjónvarpsauglýsingar, eru með viðburðastjórnun (event
planing - vorum með LAtabæjar/Icelandair hátíðina um helgina) og
svo sjá þeir um að greiða götur erlendra aðila í sambandi við
kvikmyndagerð og auglýsingar þ.e. upptökur og slíkt hér heima,
byrjaði á fimmtudaginn og það er búið að vera mjög gaman, mér líst
vel á þetta og er glaður. Vikuna áður en ég fékk vinnuna var ég með
Hrafn Mána, barnabarnið mitt á morgnanna, áttum góðar stundir saman
vinirnir, yndislegur strákur, meðfærilegur og hreinn ættarsómi í
allar áttir, hlakka til að eig með honum margar skemmtilegar
stundir á komandi árum. Nýji Depeche Mode diskurinn er kominn út,
alveg hreint frábær diskur, bandið er að hefja hljómleikaferð um
heiminn, mig langar að skella mér er vora til Evrópu g sjá þá, den
tid den sorg........Playing the Angel......
Varst þú ekki einu sinni Dóri Feiti?
sem ég þekki, suma frá því í langalöngu síðan, einn heilsaði mér
með ofanritaðari setningu, mér finnst hún frábær og hló eins og
vitlaus væri, ég held að honum hafi brugðið soldið, kannski sagði
hann hugsun sína upphátt!!!, Kannski. Annars er sýningin flott,
fullt af díngsi og hátækni, langaði bara að fara heim og taka fram
blað og blýant........og teikna soldið. Er að hlusta á snilldar
disk þessa daganna, Reggí útgáfu af Dark side of the Moon, hrein
unun á að hlusta og frábærlega gert.
Just remember that death is not the end...
það var verið að jarða fyrverandi vinnufélaga minn úr Hvalnum, sem
jafnan var nefndur Stebbi gamli, hann var 93 ára þegar hann lést,
yndislegur kall sem aldrei skipti skapi eða hreytti í mann ónotum,
alltaf glaðsinna og kátur og stóð sína pligt eins og sannur
karlmaður alla tíð, Stebbi gamli sá um að súrsa hval, allur
súrhvalur sem var étinn síðustu tuttugu árin sem hvalveiðar voru
stundaðar var súrsaður af þessum höfðingja. Hann hafði þann sið að
smakka reglulega á mysunni sem notuð var og einhverntíma gerðum við
grín að því að löngu eftir að jörðin færi í eyði og allar minnjar
um mannskepnuna væru horfnar, þá myndu þeir finna Stebba gamla í
topp formi, súrinn sýran sæi um það. Ég vildi að guð hefði gefið
mér þetta jafnlyndi, þessa endalausu gleði og skemmtilegheit sem
Stebbi bjó yfir og miðlaði frá sér án þess að ætlast til nokkurs í
skiptum. Við erum fátækari án Stebba, þessi þjóð. Hann er tákn
þessa gamla tíma, þegar það að standa sig og koma fram við fólk
eins og maður vildi að fólk kæmi fram við mann sjálfan var
sjálfsagður hluti af daglega lífinu. Blessuð sé minning Stebba
vinar míns. Svo sá ég í síðustu viku dánartilkynningu gamallar
skólasystur úr Reykjaskóla, stelpa sem ég kynntist svo sem ekkert,
hún var ákaflega lagleg á skrokkinn en kannski ekki eins á andliti,
þungbúin og fámál, alltaf eins og hún væri með svona örlítið
dulúðlegt bros um varirnar...kannski soldið eins og Mona
Lisa...eins og hún vissi eða hefði séð eitthvað sem við hin gætum
ekki ímyndað okkur. Það gengu að henn skrítnar sögur í skólanum og
þegar skólanum lauk þá heyrði ég hana ekki eða sá í nokkur ár. Næst
sá ég hana illa til reika, krúnurakaða og skítuga á Hlemmi í
slagtogi með fólki sem enginn myndi vilja fá heim til sín, nokkrum
árum síðar, þegar ég var að vinna á Kleppi sá ég hana aftur, hún
átti við alvarlega geðkvilla að eiga sem hún hafði verið að berjast
við allt sitt líf, aldrei hafði það hvarflað að mér á
Reykjaskólaárinu að eitthvað þannig væri í gangi. En svona hefur
hennar líf víst verið, inn og út af Kleppi, týnd í heimi eyturlyfja
og ofbeldis, nokkrum sinnum sá ég hana þegar hún átti góða daga, þá
leit hún vel út en ansi markeruð. Hef ekki séð hana í örugglega tíu
ár, í dánartilkynningunni stóð að jarðaförin hefði farið fram í
kyrrþey...svona soldið eins og líf hennar, á fullu að berjast við
sína innri djöfla alla tíð, í fjarlægð...í þögn...alein...frá okkur
hinum, þessum heilbrigðu. Blessuð sé minning hennar. Enda þetta á
annari tilvitnun, í þetta sinn úr smiðju Pink Floyd „There's
someone in my head but it's not me!
Wallpaper
sjónvarpsefni eins og frumsýning á nýjum lífstílsþætti með Völu
Matt og Hálfdáni, þarna er búið að sameina þær tvær manneskjur sem
hvað magnaðasta personality hafa sýnt í íslensku sjónvarpi.....,
kynning þáttarins (treilerinn) er óborganlegur, alltaf talar Mala
Vatt eins og hú sé að ávarpa fullann sal af þroskaheftu fólki með
mjög alvarlega heyrnarskerðingu, spenntastur er ég þó að sjá í
hvorri hendinni Vala mun halda á græna pennanum, þessum ótrúlega
græna penna sem fylgir Völu eins og appelsínuhúð hvert sem hún fer.
Svo er ég með mjög svo mikinn áhuga á hversu mikið Vala brettir upp
skyrtukragann í hverjum þætti, ætli það fari eftir því hvar hún er
í tíðarhringnum....? Semsagt spennandi vetur framundan, verður
gaman að sjá hvort Sirkus lifir af veturinn, ættu ekki að klikka á
því með þessar tvær fjölmiðlastjörnur!!
BOOOOM Baby!!!
í bæinn, fullt af fólki hlaupandi löðursveitt, svo ver líka fullt
af fólki að drekka í sig allskonar menningu og listir og kaffi og
meðí, ég þekkti ekki kjaft, ákvað eftir sotla stund að klára nú
göngu gagnkynhneygðra sem endaði ansi snubbótt fyrir tveimur vikum,
reyndar hjólaði ég hana að þessu sinni, brunaði upp Laugarveginn á
minn karlmannlega, gagnkynhneygða hátt og viðtökurnar létu ekki á
sér standa, enginn tók eftir neinu, ég stóð uppi sem sigurvegari og
sannaði þar að það er ekkert til að skammast sín fyrir að vera
gagnkynhneygður, það er líka pláss fyrir okkur í þessum heimi, ég
vonast til að gangan hafi nú fest sig í sessi og með árunum geti
hún orðið sterkt vopn í báráttu okkar Hetro fólks fyrir því að það
sé bara allt í lagi að vilja fólk af gagnstæðu kyni. Hjólaði svo
með dóttur minni svo í bæinn í gærkveldi, komum rett um það bil sem
sprengjurnar byrjuðu, held reyndar að 93% fólks í bænum í gærkveldi
hafai engöngu verið þarna til að stytta biðina eftir næstu
áramótum, þetta var eins og að labba inn í Spielberg mynd, allir að
horfa upp í loft, með einhverrn fáránlegan sælusvip á andlitinu, um
leið og bomburnar byrjuðu, byrjaði að rigna en það breytti engu,
fólkið stóð stjarft og horfði til himins og svo fóru allir glaðir
heim, ég og mín líka.
Hetro gangan 2005
í nokkur ár, þetta er ganga eingöngu ætluð gagnkynhneigðum en samt
má hver sem er taka þátt svo lengi sem hann er svartklæddur og ekki
með nein flögg eða læti. Tilgangur göngunar er sá að fagna því að
vera gagnkynhneygður, bera höfuðið hátt sem slíkur og láta heiminn
vita að maður er ekkert feiminn við að vera gagnkynhneygður, þó svo
sumum finnist það eitthvað prump!!!. Gönguna hóf ég á
hallærisplaninu og labbaði sem leið lá upp Austurstræti og í átt að
Hlemmi þar sem göngunni átti að ljúka þegar þangað kæmi, en það fór
nú svo að gangan varð heldur snubbótt...þar sem ég er að labba
framhjá Hressó var þar fólk sem ég þekkti sem hóaði í mig og
settist ég hjá þeim fékk mér bjór og Natsjós, þegar út kom nennti
ég ekki að halda göngunni áfram (enda vekur hún mesta athygli og
virkar best þegar maður labbar á móti hinsegin göngunni en er á
engan hátt mótmælaganga gegn þeim, aðeins verið að nota
mannfjöldan) en fór og horfði á skemmtidagskrá hjá hinsegin dögum,
það var ekkert sérlega skemmtileggt svo ég fór bara heim. Var svo
að velta fyrir mér á heimleiðinni hvað þarna hefðu verið margt
fólk, það koma alltaf einverjar fjöldatölur í fréttunum, ég skaut á
svona 20.000 manns en frétttirnar sögðu að það hefði verið á milli
30 og 40.000 manns, ég spyr hver telur, það þætti ekki gott í banka
að gjaldkerinn léti mann fá 30 til 40.000 kr ef maður ætlaði að fá
50,000 kr hjá honum, já hver telur og hvar er hann staðsettur eða
er þetta kannski bara Geir Jón aðallögga sem er að skjóta á
einhverja tölu eftir einhverri tilfinningu, hann hefur náttúrulega
ákveðna yfirsýn, er hann með teljara kannski, stendur við
Bankastræti núll og telur hausa......Annars vann ég einu sinni með
manni sem var lítt hrifin af samkynhneigð, sagði að það væri hægt
að lækna hana með pillum, þessi maður hefur alltaf verið einhleypur
og aktífur hjá KFUM.
jahá
skrifa helling um sumarið og það allt nenni ekki alveg að skrifa
það aftur en geri það kannski seinna. Ég er að skipuleggja Boxmót
The Árni Johnsen Open, þeir sem taka þátt munu boxa á móti manni
sem er annaðhvort 60 kg þyngri nú eða léttari ef viðkomandi er
þungur, verðlaunin eru vegleg, nótt á Edduhóteli að eigin vali með
Árna og/eða Leoncie og einn pakki af Þykkvabæjarkartöfluflögum.